Háskólinn í Wisconsin ríki í Bandaríkjunum hefur lagt til að lagðar verði niður 13 útskriftargráður, aðallega í mann- og félagsvísindum, og í staðinn teknar upp greinar sem sagðar yrðu nothæfari á vinnumarkaði.
Um er að ræða sparnaðartillögur vegna þess að áætlaður halli af rekstri skólans næstu tvö árin nemur um 4,5 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 443 milljóna íslenskra króna. Kemur hallinn til vegna þess að nemendum hefur fækkað og þar af leiðandi tekjur skólans minnkað. Fækkaði innritunum um 5,4% á síðasta ári en þar áður hafði fækkunin numið 6,8% frá fyrra ári.
Nemendur geta klárað en mótmæla samt
Umbæturnar beinast að einum af 11 stöðum sem skólinn er með aðsetur, í Stevens Point í Wisconsin ríki, og hafa nemendur þar boðað mótmælaaðgerðir vegna þeirra. Gert er ráð fyrir að enn verði hægt að innritast í þær greinar sem um er rætt á komandi haust og allir nemendur fái tækifæri til að klára þær greinar sem þeir hafi byrjað á.
Verði af sparnaðaraðgerðunum, þá eru þær greinar sem verður ekki lengur hægt að útskrifast úr, þó enn verði hægt að taka einstaka kúrsa meðal annars enska, heimspeki, saga, félagsfræði og spænska. Í staðinn, hyggst skólinn auka kennslu í greinum sem meiri eftirspurn eru taldar eftir af vinnumarkaði, og sem hafa skýrari atvinnutengingu og nytsamlegri lærdóm.
Aðgerðirnar hafa komið í kjölfar breytinga af hálfu stjórnvalda í Wisconsins, þar sem bæði ríkisstjórinn og þingið eru undir stjórn Repúblikanaflokksins, sem hafa fjarlægt ákvæði um æviráðningar háskólamanna úr lögum ríkisins. Auk þess eru stjórnendur opinberru skólanna ekki lengur valdir af nemendum og kennurum heldur beint af ríkisstjóranum og hafa stjórnendur í kjölfarið gert auðveldara að segja upp æviráðnu starfsfólki.
Þær greinar sem verður lögð aukin áhersla á:
- Efnaverkfræði
- Upplýsingatæknifræði
- Löggæsla á náttúruverndarsvæðum
- Fjármál
- Eldvarnarvísindi
- Grafísk hönnun
- Stjórnun
- Markaðssetning
Jafnframt verði boðið upp á nýjar námsbrautir í greinum sem tengjast:
- Fiskeldisfræði
- Dýrum í haldi
- Hönnun og afturkvæmd vistkerfis
- Umhverfisverkfræði
- Landupplýsingakerfa
- MBA nám
- Mastersnám í náttúruauðlindafræði
- Doktorsnám í sjúkraþjálfun
Þær greinar sem felldar verða niður eru samkvæmt frétt Washington Post :
- Ameríkufræði
- Listnám
- Enska, þó enska til kennsluréttinda muni áfram verða kennt
- Franska
- Landafræði
- Jarðvísindi
- Þýska
- Saga, þó samfélagsfræði til kennsluréttinda muni áfram verða kennt
- Tónlistarbókmenntir
- Heimspeki
- Stjórnmálafræði
- Félagsfræði, þó áfram verði hægt að læra félagsráðgjöf
- Spænska