Hafnarfjörður
Hafnarfjörður
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

FÍ fasteignafélag hefur hætt við kaup á húsi Iðnskólans í Hafnarfirði við Flatahraun 12. Fasteignafélagið gerði samning um kaupin 13. nóvember síðastliðinn með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki stjórnar FÍ fasteignafélags á kaupunum.

Fram kemur í tilkynningu frá fasteignafélaginu í dag að á fundi stjórnar í gær var ákveðið að samþykkja ekki kaupsamninginn og þar með kaupin á fasteigninni.