Þórir Ólafsson, fyrrverandi meðstjórnandi og meðeigandi PricewaterhouseCoopers hefur hætt störfum þar og ætlar að taka sér frí fyrst um sinn.

Þórir hefur starfað hjá PWC frá árinu 1984 og verið hluthafi síðan 1992.

Þórir hefur einnig látið af störfum sem formaður félags löggiltra endurskoðenda en hann tók sæti í stjórn félags löggiltra endurskoðenda árið 2007.