Guðlaug hefur verið formaður Bandalags háskólamanna í sex og hálft ár. Í tilkynningu segir að hún að nú sé rétti tíminn til að stíga til hliðar og hleypa nýum að. Þetta gerir hún meðal annars vegna anna en hún er oddviti Bjartrar framtíðar í sveitarstjórn Hafnarfjarðar og forseti bæjarstjórnar.

„Í vor sem leið var ég endurkjörin sem formaður BHM og var þar um að ræða síðustu tvö árin af átta í samræmi við lög bandalagsinsm "segir í tilkynningu frá Guðlaugu.

„Í síðustu sveitarstjórnarkosningum leiddi ég lista nýs framboðs í heimabæ mínum, Hafnarfirði. Niðurstöður kosninganna urðu með þeim hætti að í dag er ég forseti bæjarstjórnar og annar af oddvitum nýs meirihluta. Í samráði við stjórn BHM var í kjölfarið ákveðið að láta reyna á möguleika þess að gegna þessum tveimur hlutverkum samhliða. Það fyrirkomulag þykir mér nú vera fullreynt og hef því komist að fyrrgreindri niðurstöðu, sem ég hef þegar kynnt stjórn bandalagsins.

Staðan innan BHM er góð. Stjórnin er komin langt á veg með framfylgd starfsáætlunar ársins. Innviðir bandalagsins hafa eflst til muna á undanförnum árum, verkefnum fjölgað og grundvöllur starfsins okkar breikkað. Ég lít sátt yfir farinn veg, stolt og þakklát fyrir það sem við höfum áorkað. Samstaðan innan okkar raða er mér þar efst í huga, enda höfum við séð það skýrt á síðustu misserum hvers konar samlegðaráhrifum er hægt að ná með öflugu samstarfi. Ég hvet ykkur til að halda áfram að rækta þann styrk, af alúð og einbeittum hug, og missa ekki sjónar á sameiginlegu takmarki heildarinnar.

Sú reynsla sem ég hef öðlast í starfi mínu sem formaður BHM er ómetanleg. Ég hef notið þeirrar gæfu að hafa djúpstæða trú á því erindi sem bandalagið hefur fram að færa, jafnt í samfélagsumræðu og sem aðili á íslenskum vinnumarkaði. Ég er sannfærð um að öflug uppbygging og nýting þekkingar er forsenda framfara á öllum sviðum samfélagsins og mun áfram beita mér fyrir eflingu menntunar og fagmennsku, þótt á öðrum vettvangi verði.

Ég þakka félagsmönnum, forystu- og samstarfsfólki jafnt innan sem utan BHM samfylgdina af heilum hug og óska Bandalagi háskólamanna áframhaldandi velgengni, styrks og uppbyggingar á komandi árum."