Adolf Guðmundsson, lögmaður og framkvæmdastjóri Gullbergs á Seyðisfirði, hefur tilkynnt stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna að hann gefi ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í sambandinu. Þetta kemur fram á vef sambandsins.

Adolf hefur verið formaður stjórnar LÍÚ frá árinu 2008, eða í sex ár.

Aðalfundur LÍÚ verður haldinn 30. og 31. október 2014 á Hilton Reykjavík Nordica. Á fundinum er hluti stjórnarmanna kosinn til þriggja ára. Formaður er kosinn sérstaklega til eins árs í senn.