Óvissa ríkir um samruna tískuvöruveldisins LVMH og Tiffany eftir að fyrrnefnda fyrirtækið sagðist vera hætt við að kaupa hlutabréf skartgripaframleiðandans á almennum markaði. Yfirtakan, sem metin var á 16 milljarða dollara, var samþykkt í nóvember síðastliðnum .

Sumir hafa túlkað ákvörðun LVMH  sem tilraun til þess að endursemja um lægra kaupverð en þetta kemur fram í grein BBC .

Hlutabréfaverð Tiffany hefur lækkað um 11,3% frá því á mánudag síðastliðinn vegna efasemda um hvort samruninn muni fara fram en bréf skartgripaheildsalans standa nú í 114 dollara á hlut. LVMH samþykkti í nóvember að greiða 135 dollara á hlut.

Tískurisinn LVMH einblínir þessa dagana á „þróun heimsfaraldursins og möguleg áhrif hans á frammistöðu og heildarsýn Tiffany & Co með hliðsjón af samkomulagi fyrirtækjanna tveggja,“ samkvæmt tilkynningu tískurisans í dag.