„Ég hef sagt starfi mínu lausu sem forstjóri Iceland Express eftir aðeins 10 daga í starfi," segir Birgir Jónsson í yfirlýsingu sem hann hefur sent fjölmiðlum. Hann segist hafa sett mjög ströng skilyrði um hvernig samstarfi hans við eigendur félagsins yrði háttað.

„Þessi samstarfsmáti var vel skilgreindur með skriflegum hætti og samþykktur af eigendum og stjórn IEX og var í raun grundvöllur þess að ég þáði starfið. Í stuttu máli var ljóst á fyrstu dögum mínum í starfi að þetta samkomulag héldi ekki," segir Birgir í yfirlýsingunni.

Eigandi að 99,75% hlutafé í Iceland Express er Eignarhaldsfélagið Fengur. Eigandi þess er Pálmi Haraldsson. Pálmi er stjórnarformaður en auk hans sitja Sigurður G. Guðjónsson lögmaður og Skarphéðinn Berg Steinarsson í stjórninni samkvæmt núverandi skráningu í fyrirtækjaskrá.

Hann hafi tengt sig persónulega við það verkefni að snúa fyrirtækinu til betri vegar, hafi lýst því yfir í fjölmiðlum en fékk ekki stuðning til að standa við stóru orðin.

„Því ákvað ég að segja starfi mínu lausu og vonast að sjálfsögðu til að það komi ekki til með að skaða félagið á nokkurn hátt. Ég hef þegar látið af störfum," segir Birgir.

Yfirlýsing Birgis Jónssonar í heild:

Tilkynning til fjölmiðla varðandi starfslok mín sem forstjóri Iceland Express.

Ég hef sagt starfi mínu lausu sem forstjóri Iceland Express eftir aðeins 10 daga í starfi.

Þegar til mín var leitað og ég beðinn um að taka þetta starf að mér setti ég mjög ströng skilyrði um hvernig samstarfi mínu við eigendur félagsins yrði háttað. Ég vildi fá mikið frelsi til að endurskipuleggja reksturinn og ég setti fram hugmyndafræði og vel skilgreind atriði sem ég vildi fá að vinna að með sjálfstæðum hætti, en að sjálfsögðu í nánu og eðlilegu samstarfi við stjórn félagsins.

Aðferðafræðin snérist aðallega um það að dagleg stýring á fyrirtækinu væri alfarið í mínum höndum og svo að ég fengi að hrinda ákveðnum breytingum í framkvæmd sem höfðu aukna þjónustu við farþega, áreiðanleika og lengri tíma arðsemi IEX að aðalmarkmiði. Ég myndi leggja ákveðnar tillögur fyrir stjórn og fá svo leyfi til framkvæmda samkvæmt þessari hugmyndafræði.

Þessi samstarfsmáti var vel skilgreindur með skriflegum hætti og samþykktur af eigendum og stjórn IEX og var í raun grundvöllur þess að ég þáði starfið.

Í stuttu máli var ljóst á fyrstu dögum mínum í starfi að þetta samkomulag héldi ekki.

Ég hef gengið fram fyrir skjöldu í fjölmiðlum og lýst því yfir hvernig ég ætlaði að snúa fyrirtækinu til betri vegar en það hefur verið á undanfarin misseri. Þegar maður hefur tengt sig persónulega við svo stórt mál er lykilatriði að maður sé trúr sinni sannfæringu og hætti um leið og maður fær ekki stuðning til að standa við stóru orðin.

Því ákvað ég að segja starfi mínu lausu og vonast að sjálfsögðu til að það komi ekki til með að skaða félagið á nokkurn hátt. Ég hef þegar látið af störfum.

Ég hef fengið óteljandi skilaboð frá starfsmönnum félagsins á þessum stutta tíma og það er ljóst að í þeim býr mikill vilji og metnaður til að hjálpa Iceland Express til að vera vinnustaður sem þau geta áfram verið stolt af að starfa á. Mér finnst sárast að bregðast öllu því góða fólki sem mig hlakkaði til að starfa með í krefjandi umhverfi.

Ég óska fyrirtækinu, starfsfólki ,stjórn og eigendum alls hins besta í þeirri baráttu sem stendur fyrir dyrum og vildi óska að ég hefði fengið að berjast með þeim eins og til stóð.

Ég mun ekki tjá mig frekar um málið í fjölmiðlum.