Viðbragðsstjórn og farsóttarnefndar Landspítala ákvað í dag að færa spítalann af óvissustigi á hættustig í samræmi við viðbragðsáætlun Landspítala.

„Upp hafa komið Covid -19-smit meðal starfsfólks sem kallar á sóttkví starfsfólks sem kann að hafa áhrif á starfsemi spítalans," segir í tilkynningu frá spítalanum. „Annars vegar er um að ræða smit í Skaftahlíð 24 þar sem skrifstofur og kennslurými eru til húsa og hins vegar í skurðlækningaþjónustu."

Í dag fara fram umfangsmiklar skimanir fyrir Covid -19 og er gert ráð fyrir að ríflega 200 starfsmenn spítalans verði í úrvinnslusóttkví þar til niðurstöður liggja fyrir og hluti þeirra í hefðbundinni sóttkví.

Í tilkynningu frá spítalanum segir að ekki sé gert ráð fyrir skerðingu á þjónustu við sjúklinga að svo stöddu, en unnið sé að endurskipulagningu þjónustuþátta til að tryggja samfellda og örugga þjónustu.

Eftirfarandi ákvarðanir taka gildi nú þegar.

  1. Algjör grímuskylda er á öllum starfsstöðvum Landspítala, nema þegar matast er og skal þá halda 2 metra fjarlægðarmörk. Inniliggjandi sjúklingar eru þó undanþegnir grímuskyldu.
  2. Alla fundi starfsfólks ber að halda með rafrænum hætti nema brýna nauðsyn beri til annars og gildir þá grímuskylda.
  3. Það starfsfólk sem getur sinnt störfum sínum að heiman skal gera það í samráði við sinn næsta yfirmann.
  4. Engin leyfi sjúklinga eru heimil.
  5. Aðeins einn gestur getur heimsótt hvern sjúkling á dag og allir gestir verða að bera grímu. Heimsóknartímar eru óbreyttir.

Á spítalanum eru nú ríflega 200 sjúklingar í eftirliti á Covid -19 göngudeild og 2 sjúklingar liggja á spítalanum vegna Covid -19 sýkingar.

Sam­tals greind­ust 38 ný smit af Covid -19 inn­an­lands í gær og var 21 ekki í sóttkví. Í fyrradag greindust 75 og voru 37 þeirra ekki í sóttkví.