Fimm stéttarfélög sjómanna hafa ákveðið að sameinast um viðbröð vegna hópsýkingar um borð í frystiskipinu Júlíusi Germundssyni. Þau hafa ákveðið bæði að kæra málið til lögreglu og krefjast þess að fram fari sjópróf vegna atviksins.

Á heimasíðu Verkalýðsfélags Vestfjarða kemur þetta fram en yfirlýsingin sem þar er birt er eftirfarandi:

Stéttarfélög skipverja á Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 funduðu með lögmönnum í morgun um sameiginlegar aðgerðir vegna framgöngu Hraðfrystihússins Gunnvarar hf. og hunsun á tilmælum yfirvalda um viðbrögð við hópsmiti um borð í togaranum. Stéttarfélögin telja þessa framgöngu vítaverða og hafa ákveðið bæði að kæra málið til lögreglu og krefjast þess að fram fari sjópróf. Stéttarfélögin eru sammála um að nauðsynlegt sé að rannsaka málið í kjölinn, fá allar staðreyndir upp á yfirborðið og draga þá til ábyrgðar sem stóðu að þeirri ákvörðun að halda skipinu til veiða í stað þess að bregðast við stöðunni með ábyrgum hætti.

Félag skipstjórnarmanna, Sjómannafélag Íslands, Sjómannasamband Íslands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga og VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna.