Vodafone hefur gefið út nýtt hlutafé í félaginu að nafnvirði rétt rúmra 3,4 milljarða króna. Hlutaféð hefur þegar verið afhent Stoðum vegna uppgjörs á kröfum þess á hendur Vodafone.

Fram kemur í tilkynningu frá Vodafone að hver hlutur er 10 krónur að nafnvirði og eru því 340.764.999 hlutir útgefnir í félaginu. Hver hlutur gildir einu atkvæði og eru atkvæði í félaginu því jafn mörg og sem nemur fjölda hluta.

Vodafone á engin hlutabréf í sjálfu sér, að því er segir í tilkynningunni.