Söluferli á Samskiptum ehf. er hafið en Íslandspóstur auglýsti allt hlutafé í dótturfélagi sínu til sölu í dag. Samskipti er öflugt þjónustufyrirtæki á prentmarkaði sem leggur áherslu á faglega og persónulega þjónustu en það hefur verið leiðandi á sínu sviði allt frá árinu 1978.

Salan á félaginu fer fram í samstarfi við Deloitte ehf. sem er ráðgjafi Íslandspósts í söluferlinu. Frestur til að skila inn óskuldbindandi tilboði er til klukkan 16:00 þann 10. október næstkomandi en áhugasamir kaupendur eru hvattir til að hafa samband við Deloitte með tölvupósti á netfangið [email protected] til þess að fá nánari upplýsingar.

„Íslandspóstur stendur á tímamótum og nauðsynlegt er að líta á alla hluta rekstrarins og endurmeta hvernig fyrirtækið á að vera byggt upp til framtíðar. Undanfarið hafa stjórnendur og stjórn félagsins unnið saman að gerð áætlunar til þess að umbreyta rekstrinum og hefur meðal annars verið gripið til víðtækra hagræðingaraðgerða og endurskipulagningar.“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts.

„Salan á Samskiptum er hluti af þessu breytingaferli en okkar helstu markmið eru að stórbæta þjónustu til viðskiptavina, snúa rekstri Íslandspósts úr tapi í hagnað og einbeita okkur að kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Prentsmiðjurekstur er ekki hluti af þeirri kjarnastarfsemi og því var ákveðið að selja félagið. Við vonumst til að söluferlið gangi hratt og örugglega fyrir sig enda er Samskipti þekkt og öflugt fyrirtæki á sínu sviði og er sem slíkt mjög áhugaverður fjárfestingarkostur.“