Nú hefur Tesla Motors selt 325 þúsund bifreiðar í forpöntun. Bíllinn sem um ræðir er hinn nýkynnti Tesla Model 3, en hann á að vera fyrsta rafbifreiðin sem býður upp á góða drægni og lágt verð.

Viðskiptavinum Tesla býðst að forpanta bílinn og leggja niður þúsund Bandaríkjadala innborgun á hann, en ólíklegt er að framleiðsla hefjist fyrr en um lok 2017. Því er kaupendum þolinmæði mikilvæg.

Forpantanirnar nema um 14 milljörðum Bandaríkjadala í hreinni sölu, en Tesla hefur haldið því fram að aldrei fyrr hafi nokkur framleiðandi vöru tekið við svo mörgum forpöntunum.