Starfsmenn Landsbankans hafa þegar tryggt sér 1,45 prósenta hlut í bankanum, að því er segir í frétt Fréttablaðsins . Virði þess hlutar er sem stendur um þrír milljarðar króna. Alls geta þeir eignast tveggja prósenta hlut ef valdar eignir sem hann innheimtir hækka enn meira í virði út þetta ár. Virði þeirra jókst um sex milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins í ár, samkvæmt árshlutauppgjöri bankans sem birt var í lok síðustu viku.

Þegar uppgjör fór fram milli gamla og nýja Landsbankans í desember 2009 hélt þrotabú þess gamla eftir 18,7 prósenta hlut í nýja bankanum. Afgangurinn, 81,3 prósent, fór til íslenska ríkisins sem vistar hann í Bankasýslu ríkisins. Á móti gaf nýi bankinn út skilyrt skuldabréf sem á að gera upp miðað við stöðu þess í árslok 2012. Það getur mest orðið 92 milljarða króna virði. Ef það gerist mun þrotabúið fá þá greiðslu og skila eignarhlutnum sem það fékk fyrir tveimur og hálfu ári. 16,7 prósent hans færu til Bankasýslunnar en tveggja prósenta hlutur í að mynda stofn að nýju kaupaukakerfi fyrir starfsmenn nýja bankans.