Stjórn Bændasamtaka Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum af stöðu sauðfjárræktar í landinu. „Þær miklu afurðaverðslækkanir sem boðaðar hafa verið í haust auk seinkana á greiðslum munu valda bændum verulegum vanda á næstu mánuðum. Ljóst er að sauðfjárbændur munu eiga í erfiðleikum með að standa við skuldbindingar sínar,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

Stjórnin hvetur félagsmenn sína til að ræða við birgja og viðskiptabanka sem komin er upp og leita með þeim lausna. Einnig er tekið fram að samtökin munu veita þann stuðning sem þeim er fært.

Að lokum kemur fram að rætt hefur verið við stjórnvöld um mögulegar aðgerðir til að draga úr framleiðslu til lengri tíma litið. Vonir standa til að þar náist niðurstaða, en hún tekur ekki á þeim bráðavanda sem er uppi að mati stjórnarinnar. „Stjórn BÍ telur skynsamlegast að taka á honum með sambærilegum aðferðum og tíðkast í samanburðarlöndum okkar í samskonar tilvikum þar sem gripið er inn í markaðinn ef aðstæður sem þessar koma upp,“ segir að lokum í yfirlýsingu Bændasamtaka Íslands..