Hafliði Jón Sigurðsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Reksturs hjá Veitum ohf. Hafliði, sem er með M.Sc. gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði  frá Háskóla Íslands, kemur til Veitna frá Rhino Aviation þar sem hann var framkvæmdastjóri markaðs- og sölumála. Þar áður var hann deildarstjóri viðhaldsstýringar hjá Icelandair. Hafliði hefur störf hjá Veitum um næstu mánaðamót.

Veitur er dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur og hefur það hlutverk að byggja upp og reka vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og fráveitu á sunnan- og vestanverðu landinu. Sem forstöðumaður Reksturs mun Hafliði bera ábyrgð á daglegum rekstri veitukerfanna, gerð viðbragðs- og viðhaldsáætlana, eftirliti með framkvæmdum og umsjón þeirra fleiri en þúsund fasteigna sem Veitur eiga