Hafnarfjarðarbær undirritaði nýverið samstarfssamning um bankaviðskipti við KB banka. Samningurinn er gerður í framhaldi af útboði Hafnarfjarðarbæjar á bankaviðskiptum s.l. vor. Felur samningurinn í sér að KB banki verður aðalviðskiptabanki Hafnarfjarðarbæjar og fyrirtækja hans.

Hafnarfjarðarbær færir öll sín viðskipti til KB banka sem þar með tekur að sér að veita bæjarfélaginu heildstæða fjármálaþjónustu eftir þörf þeirra hverju sinni.