Fyrirtækið Skólamatur ehf. hefur gert um 2,9 milljarða samning við Hafnarfjarðarbæ til fjögurra ára um að bjóða upp á mat í skólum og leikskólum bæjarins. Er ársvelta samningsins 723,5 milljónir króna en jafnframt er mögulegt að framlengja hann um 1 til 2 ár.

Nýlega bauð bærinn út framleiðslu og framreiðslu matar fyrir leik- og grunnskóla í Hafnarfirði. Tveir aðilar tóku þátt í útboðinu en annar dró tilboð sitt til baka. Bæjarráð samþykkti, í umboði bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, á fundi sínum þann 11. júlí síðastliðinn að ganga til samninga við Skólamat ehf.

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Jón Axelsson, framkvæmdastjóri Skólamatar ehf. skrifuðu undir samstarfssamninginn  sem nær til framleiðslu og framreiðslu á mat fyrir leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar árin 2019-2023 en Skólamatur hefur frá 1. nóvember 2017 sinnt þessari þjónustu.

Samningstíminn er fjögur ár með ákvæðum um að hægt verði að framlengja í tvígang um eitt ár í senn ef báðir aðilar óska þess. Þannig getur hámarkssamningstími orðið 6 ár frá undirritun samnings. Skólamatur mun sjá um mat fyrir nemendur og starfsfólk ásamt samantekt að máltíð lokinni.

Segir almenna ánægju með matinn

Að sögn Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra hefur almenn ánægja verið með gæði matar og þjónustu Skólamatar meðal þeirra sem nýta þjónustuna í dag. Kveðst hún þess fullviss að fyrirtækið muni áfram standa undir þeim væntingum sem sveitarfélagið gerir heilt yfir til þjónustu, gæða og fjölbreytni máltíða.

Hafnarfjarðarbær hefur stefnt að því að vera heilsueflandi samfélag frá því að gengið var til samninga við Embætti Landlæknis í mars 2015 og hefur frá þeim tímapunkti unnið markvisst að því að framkvæma og þróa ný verkefni í samstarfi við viðeigandi aðila.

„Skólamatur þekkir umhverfi okkar og áherslur vel og hefur hingað til verið mjög móttækilegt fyrir nýjum hugmyndum og þróunarverkefnum sem við höfum staðið að innan m.a. skólasamfélagsins“ segir Rósa.

Bjóða hafragraut og ávexti

Þannig starfa leikskólar Hafnarfjarðar t.a.m. eftir nýjum næringarsáttmála og elda eftir samræmdum matseðlum sem byggja á mikilli greiningarvinnu, næringarútreikningum, samstarfi og samtali viðeigandi aðila.

Ákveðið hefur líka verið að innleiða tilraunaverkefni með hafragraut og lýsi í morgunmat inn í alla grunnskóla sveitarfélagsins og opna þannig á möguleika allra til að neyta hollrar ókeypis fæðu í upphafi skóladags.

Samhliða var gerð tilraun með ávaxta- og grænmetishressingu að morgni og svo síðdegishressingu sem gaf mjög góða raun og því verður boðið upp á áskrift að slíkri hressingu innan skólasamfélagsins frá og með hausti.

„Hafnarfjarðarbær lítur á það sem eitt af hlutverkum sínum að tryggja heilsusamlega næringu í skólum sveitarfélagsins. Breytt fyrirkomulag með næringarsáttmála innan leikskólanna hefur þannig ekki bara stuðlað að hollu mataræði og heilbrigðum matarvenjum heldur hefur fyrirkomulagið líka auðveldað skipulag og hjálpað til við að draga úr matarsóun með tilheyrandi umhverfisverndun,“ segir Rósa.

„Sveitarfélagið, með öllum sínum skólum, stofnunum og heimilum er mikilvægur þátttakandi í uppbyggingu heilsueflandi samfélags. Holl og góð næring hefur áhrif á vellíðan og heilsu og er öllum mikilvæg. Þá einmitt ekki síst börnum sem eru að vaxa og þroskast.“