Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að ganga að fyrirliggjandi kaupsamningi á húsnæði St. Jósefsspítala og þar með frá kaupum á eigninni. Við kaupin skuldbindur Hafnarfjarðarbær sig til að reka almannaþjónustu í fasteigninni að lágmarki í 15 ár frá undirritun samnings. Sérstakur starfshópur mun skoða hugmyndir um starfsemi í húsinu.

Hafnarfjarðarbær hefur samið við fjármála- og efnahagsráðuneytið um kaup á 85% eignarhlut ríksisins í St. Jósefsspítala að Suðurgötu 41 í Hafnarfirði ásamt sömu hlutdeilt í eignarlóð og öllu því sem eigninni fylgir. Fyrir átti Hafnarfjarðarbær 15% í eigninni. Hér er um að ræða fyrrum sjúkrahús á fjórum hæðum í nokkrum samföstum byggingum ásamt kapellu.

Stærð hússins er 2.829 m² og er húsið byggt á árunum 1926, 1973 og 2006. Byggingin stendur á 4.467,2 m² eignarlóð sem skilgreind er sem lóð undir samfélagsþjónustu. Við kaupin skuldbindur Hafnarfjarðarbær sig til að reka almannaþjónustu í fasteigninni að lágmarki í 15 ár frá undirritun samnings. Með almannaþjónustu er átt við starfsemi vegna félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu, menningar- eða fræðslustarfsemi eða aðra sambærilega þjónustu sem almenningur sækir í sveitarfélaginu. Hafnarfjarðarbær skuldbindur sig jafnframt til hefja rekstur í fasteigninni innan 3 ára frá undirritun samnings. Kaupverð er 100 milljónir króna og fer afhending á eign fram 15. ágúst 2017 að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ..