Nýsamþykkt fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar fyrir næsta ár gerir ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu upp á tæplega milljarð, eða 985 milljónir króna. Skuldaviðmið heldur áfram að lækka og verður samkvæmt áætluninni um 120% í árslok 2019. Áætlað veltufé frá rekstri eykst um 474 milljónir króna frá áætlun 2018.

Álagningarstuðull fasteignaskatts atvinnuhúsnæðis í bænum lækkar úr 1,57% í 1,40% og fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði úr 0,28% í 0,26%. Útsvarsprósentan verður áfram 14,48% en hún var lækkuð úr 14,52% árið 2017.

4,5 milljörðum eytt í ýmis verkefni

Áætlað er að eyða 4,5 milljörðum króna í alls kyns fjárfestingarverkefni á árinu 2019. Þar með talið verður félagslegum íbúðum fjölgað, og keyptar verða íbúðir fyrir um 500 milljónir króna á ári næstu fjögur ár. Auknum fjármunum verður varið í að þróa og festa nýja snemmtæka þjónustu í sessi en unnið hefur verið að verkefninu allt árið 2018.

Verkefnið snýr að því að finna leiðir til að bæta félags-, skóla- og geðheilbrigðisþjónustu við leik- og grunnskólabörn bæjarins og fjölskyldur þeirra. Stöðugildum sálfræðinga til að sinna leik- og grunnskólum var fjölgað á árinu 2018.

Auka systkinaafslátt á leikskólum

Dvalargjald á leikskóla mun áfram haldast óbreytt sjötta árið í röð. Systkinaafsláttur á leikskólagjöldum eykst og þriðja systkini í grunnskóla fær frítt fæðisgjald, auk þess sem tekjutengdur afsláttur leikskólagjalda verður aukinn.

Loks verður unnið áfram að verkefni um fjölþætta heilsurækt 65 ára og eldri í Hafnarfirði sem og haldið verður áfram að þróa og bæta þjónustu við eldri borgara í heimahúsum.

Ráðdeild og öguð fjármálastjórn

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir áfram haldið á braut ráðdeildar og agaðrar fjármálastjórnunar í bænum.
„Fjárhagsstaða bæjarins styrkist ár frá ári og enn lækkar skuldaviðmið bæjarins. Álagningarstuðull fasteignagjalda er lækkaður á íbúða- og atvinnuhúsnæði til að koma til móts við umtalsverða hækkun fasteignamats,“ segir Rósa.

„Festa í fjármálastjórn bæjarins og hagkvæmur rekstur skilar sér í aukinni þjónustu og meiri slagkrafti í starfsemi bæjarins. Framundan er mikil uppbygging á ýmsum sviðum í Hafnarfirði, jafnt í þjónustu sem og á innviðum.“