Hafnarfjarðarkaupstaður hefur birt ársreikning fyrir árið 2014 en hann var lagður fyrir bæjarstjórn í dag. Rekstrarniðurstaða ársins fyrir óvenjulega liði var jákvæð um 409 milljónir króna en áætlun gerði hins vegar ráð fyrir rekstrarafgangi að fjárhæð 619 milljóna.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum .

Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð um 76 milljónir króna en meðal óvenjulegra liða er gjaldfærsla vegna niðurstöðu dóms Hæstaréttar frá 5. mars 2015 að sveitarfélaginu beri að greiða ríkinu fjármagnstekjuskatt auk vaxta vegna sölu á eignarhlut í HS Orku hf. á árinu 2008 að fjárhæð 333 milljóna króna.

Tekjur námu 19.648 milljónum króna sem er 418 milljónum umfram áætlun. Laun og launatengd gjöld eru stærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins og námu 9.985 milljónum króna sem er 442 milljónum krónum hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Annar kostnaður var 7.163 milljónir sem er 230 milljónum umfram áætlun. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og óreglulega liði nam 1.634 milljónum króna. Fjármagnsliðir námu 1.226 milljónum króna sem er 67 milljónum umfram áætlun. Veltufé frá rekstri nam um 1.593 milljónum króna sem er 478 milljónum lægra en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildarskuldir bæjarins lækkuðu um 696 milljónir króna á árinu þrátt fyrir hækkun lífeyrisskuldbindingar. Skuldahlutfallið hélt áfram að lækka og var komið í 202% um áramótin en var hæst 294% árið 2009. Skuldaviðmiðið var komið í 176% í lok árs en það var 274% árið 2009.

Heildareignir í lok árs námu samtals 48.198 milljónum króna og hafa þær lækkað um 285 milljónir milli ára og heildarskuldir og skuldbindingar námu samtals 39.766 milljónum króna.

Ársreikninginn má lesa í heild sinni hér .