Hafnarfjarðarbær tapaði í dag máli vegna sölu á skipi og aflaheimildum Stálskips árið 2013, en dómurinn var kveðinn upp í Héraðdsómi Reykjaness. Málið er til komið vegna þess að snemma árs 2013 tóku eigendur Stálskips þá ákvörðun að hætta útgerð og selja skipið Þór HF 4 og aflaheimildir þess.
Aflaheimildirnar voru seldar til útgerðarfélaganna Síldarvinnslunnar, Útgerðarfélags Akureyringa, Samherja Íslandi og Gjögurs, en skipið sjálft var selt til Rússlands.
Bæjarráð Hafnarfjarðar taldi að bæjarfélaginu hefði átt að vera boðinn forkaupsréttur vegna sölunnar og höfðaði bærinn því mál gegn Stálskipi og kaupendum aflaheimildanna og krafðist þess að framsal heimildanna yrði ógilt.
Dómurinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að ákvæði um forkaupsrétt byggðarlaga vegna sölu á fiskveiðiskipum tæki til skips, en ekki aflaheimilda. Í málinu hafi ekki verið krafist ógildingar á sölu skipsins Þórs, heldur aðeins heimildanna. Af þeim sökum voru útgerðarfélögin sýknuð af öllum kröfum bæjarins.