Gengi hlutabréfa Haga lækkaði um 1,33% í Kauphöllinni í dag. Velta með hlutabréfin nam 92 milljónum króna. Þetta var mesta gengislækkun dagsins á hlutabréfamarkaði sem einkenndist öðru fremur af lækkun á gengi hlutabréfa.

Á sama tíma lækkaði gengi hlutabréfa HB Granda um 1%, Sjóvár um 0,92%, Vodafone um 0,69%, Eimskips um 0,36&, N1 um 0,30% og Icelandair Group um 0,29%.

Á hinn bóginn hækkaði gengi bréfa Marael um 0,98%, VÍS um 0,97% og TM um 0,63%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,21% og endaði hún í 1.137 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam tæpum 308,5 milljónum króna. Mest var veltan með hlutabréf Eimskips eða upp á 114 milljónir.