Hagar hf. undirrituðu í dag nýjan lánssamning við Arion banka sem tryggir langtímafjármögnun félagsins, samkvæmt tilkynningu. Áður var félagið með lánssamning við bankann sem var á gjalddaga í október 2015 með framlengingarheimild til fjögurra ára.

Upphæð samningsins er 4,3 milljarðar króna og eru mánaðarlegar afborganir óbreyttar frá fyrri samningi. Gjalddagi verður í október 2019, með framlengingarheimild til maí 2021. Ber lánssamningurinn breytilega, óverðtryggða millibankavexti (REIBOR) að viðbættu álagi sem lánveitandi hefur heimild til að endurskoða árlega.

Fram kemur í tilkynningunni að lánskjör hins nýja samnings séu hagstæðari fyrir félagið og hefur það heimild til að greiða lánið upp hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar. Þá sé einnig búið að létta nokkuð á skuldbindingum félagsins og fjárhagslegum skilyrðum í nýjum lánssamningi.