Hagar hf. hyggast gefa út 8 milljarða króna skuldabréf. Fré þessu er greint á vef Arctica Finance .

„Hagar hf. hafa undanfarnar vikur unnið að endurfjármögnun samstæðunnar og hefur félagið þegar tryggt sér fjármögnun í formi lánalína, til að mæta skammtímasveiflum í rekstri. Samhliða hefur félagið hug á að gefa út og selja allt að 8 milljarða króna skuldabréf til að ljúka endurfjármögnun samstæðunnar. Skrifað hefur verið undir samning við Arctica Finance hf. um framkvæmd skuldabréfaútboðsins en sumarmánuðir munu fara í undirbúning og eru fjárfestakynningar áætlaðar um miðjan ágúst," segir í tilkynningunni.