Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að greiddur verði arður að upphæð um 1,2 milljarðar króna til hluthafa vegna reikningsársins 2013/14. Upphæðin samsvarar um 1,0 krónu á hlut, eins og fram kemur í ársreikningi félagsins.

Aðalfundur verður þann 5. júní en samþykki aðalfundur tillöguna verður arðsréttindadagur 11. júní næstkomandi. Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2013/14 verður því 6. júní, eða næsti viðskiptadagur eftir aðalfund. Útborgunardagur arðgreiðslu verður 27. júní 2014.