Stjórn Haga mun leggja til við aðalfund félagsins, þann 6.júní, að greiddur verði arður sem nemur 0,45 kr. á hlut. Heildararðgreiðslan verður um 530 milljónir króna og verður hún greidd út sem reiðufé. Samkvæmt ársskýrslu Haga er stefnt að því að auka arðinn í framtíðinni eftir því sem vaxtaberandi skuldir Haga lækka.