Samkomulag hefur verið staðfest á milli Haga hf. og eigenda kjötvinnslunnar Ferskra kjötvara hf. Síðumúla 34 um kaup Haga á fyrirtækinu. Núverandi eigendur Ferskra kjötvara eru Sláturfélag Suðurlands með 63,6% hlut og eigendur Stjörnugríss á Kjalanesi með 36,4% hlut. Kaupin eru með fyrirvara um samþykki Samkeppnisstofnunar og áreiðanleikakönnun. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Sala hlutabréfanna skilar Sláturfélaginu nokkrum söluhagnaði en óljósara er með áhrif á framtíðar rekstur vegna breytts samkeppnisumhverfis segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.