Bónus í eigu Haga og sex kjötvinnslufyrirtækjum er gert að greiða alls 405 milljónir króna í sektir vegna brota gegn 10. grein samkeppnislaga með samkeppnishamlandi samvinnu um verð. Þetta gerðu fyrirtækin með tvíhliða samningum eða samstilltum aðgerðum í tengslum við smásöluverðlagningu á kjöti og unnum kjötvörum sem kjötvinnslurnar hafa verðmerkt fyrir Haga.

Þetta segir í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu en það birtir í dag ákvörðun þar sem greint er frá brotunum. Kemur fram að fyrirtækin hafi óskað eftir því að ljúka málinu með sátt eftir að þeim var kynnt frumniðurstaða eftirlitsins. Það gerðu fyrirtækin hvert í sínu lagi. Í fréttatilkynningu kemur fram að:

  • „27. september sl. var gerð sátt við Haga. Greiða Hagar 270 m.kr. í stjórnvaldssekt.
  • 1. október var gerð sátt við Sláturfélag Suðurlands og Reykjagarð en þessi fyrirtæki eru hluti af sömu fyrirtækjasamstæðu. Greiða þau 45 m.kr. samtals í stjórnvaldssekt.
  • 1. október var gerð sátt við Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga. Greiðir félagið 40 m.kr. í stjórnvaldssekt.
  • 6. október var gerð sátt við Norðlenska og greiðir fyrirtækið 30 m.kr. í stjórnvaldssekt.
  • 8. október var gerð sátt við Kjarnafæði og greiðir fyrirtækið 20 m.kr. í stjórnvaldssekt.

12. nóvember sl. var gerð sátt vegna Kjötbankans. Í henni voru viðurkennd brot fyrirtækisins. Forsendur voru hins vegar ekki til álagningar sekta m.a. vegna gjaldþrots Kjötbankans.Síld og fiskur og Matfugl óskuðu eftir sáttarviðræðum við Samkeppniseftirlitið en þær viðræður skiluðu ekki niðurstöðu. Þáttur þessara fyrirtækja er því enn til rannsóknar. Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, sem birt er í dag, tekur aðeins til þeirra fyrirtækja sem gert hafa sátt við eftirlitið.“

Segir í tilkynningu að lög banni framleiðendum og smásölum að hafa með sér samráð um endursöluverð. „Tölvupóstar og önnur gögn sýna að annars vegar Bónus og hins vegar kjötvinnslurnar sex (hver fyrir sig) höfðu nána samvinnu um smásöluverð Bónuss og afslætti frá því. Fólst í þessu mun meiri samvinna heldur en einföld samskipti um verðmerkingar á kjöti og unnum kjötvörum. Voru brotin til þess fallin að valda samkeppnislegu tjóni.

Til þess að vinna gegn frekari brotum á samkeppnislögum og skapa skilyrði fyrir aukinni samkeppni hafa umrædd fyrirtæki fallist á að hlíta tilteknum fyrirmælum og skilyrðum og eru þau birt í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Þau eru einkum eftirfarandi:

  • Hagar og umræddir kjötbirgjar hafa skuldbundið sig til að hætta öllum samskiptum um smásöluverð í verslunum Haga. Í þessu felst að starfsmönnum Haga og kjötbirgjanna er óheimilt að eiga samskipti um smásöluverð, afslætti frá smásöluverði og smásöluálagningu.
  • Frá og með 1. mars 2011 munu Hagar hætta að taka við öllum kjötvörum merktum með smásöluverði og eru staðlaðar, hvað varðar magn, umbúðir og innihald. Er hér t.d. um að ræða flestar tegundir af pylsum, tilbúnum réttum og sumar áleggstegundir.
  • Eftir 1. júní 2011 munu verslanir Haga alfarið hætta að taka við öðrum kjötvörum sem merktar eru með smásöluverði. Frá nefndum tímamörkum munu verslanir Haga þannig annast að öllu leyti sjálfar merkingu smásöluverðs á kjötvörum.
  • Högum er óheimilt að veita afslætti á kjötvörum nema um raunlækkun sé að ræða frá gildandi smásöluverði. Það er bæði samkeppnishamlandi og villandi gagnvart neytendum að gefa til kynna að vara sé á tilboði (t.d. 10% afslætti) þegar í raun er aðeins verið að selja hana við því verði sem almennt gildir í viðkomandi verslun.
  • Kjötbirgjunum er veittur sami aðlögunartími og verslunum Haga til að breyta fyrirkomulagi við verðmerkingar á kjöti. Þannig skulu þeir fyrir 1. mars 2011 hætta að merkja staðlaðar vörur með smásöluverði og eftir 1. júní 2011 skulu allar vörur þeirra verða afgreiddar án smásöluverðmerkinga. Gildir þetta gagnvart Högum og öllum öðrum endurseljendum sem eru í viðskiptum við kjötbirgjana. Á þetta einnig við um vörur sem framleiddar eru undir vörumerkjum viðkomandi verslana eða verslanakeðja.
  • Kjötbirgjunum er óheimilt að gefa út eða birta leiðbeinandi eða fast smásöluverð á vörum sínum, s.s. með útgáfu á verðlistum.“

Segir að aðlögunarfrestur sé veittur til þess að hætta merkingum kjötvinnslufyrirtækja á smásöluverði. „Til þess að vel takist til um breytingarnar er mikilvægt að viðkomandi fyrirtæki, hagsmunasamtök neytenda og stjórnvöld á þessu sviði undirbúi breytingarnar vel og hafi hagsmuni neytenda af virkri samkeppni og skýrum verðmerkingum að leiðarljósi við framkvæmd þeirra.“