Framundan er mesta samdráttarskeið sem íslenskt efnahagslíf hefur gengið í gegnum á síðari árum. Fyrir höndum eru tvö erfið ár en það tekur að rofa til að nýju á árinu 2011.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri hagspá hagdeildar ASÍ og er birt á vef sambandsins í dag.

Þar kemur fram að útlit er fyrir að niðursveiflan verði bæði dýpri og lengri en fyrstu spár í haust gerðu ráð fyrir. Erfitt hafi reynst að koma starfsemi bankakerfisins aftur í viðunandi horf eftir bankahrunið og skapa tiltrú á íslenskt efnahagslíf auk þess sem horfur erlendis fari versnandi.

„Næstu tvö árin dregur mjög úr umsvifum í hagkerfinu og samdráttur í landsframleiðslu verður verulegur,“ segir á vef ASÍ.

„Umskipti verða á árinu 2011 þegar landsframleiðslan tekur að aukast að nýju. Þessi sýn byggir á þeirri forsendu að það takist að skapa traust á íslensku efnahagslífi á ný og blása lífi í íslensku krónuna. Ef það tekst ekki, er hætta á að hagkerfið festist í fjötrum.“

Þá kemur fram að horfur á vinnumarkaði séu dökkar allt tímabilið og útlit fyrir að atvinnuleysi verði á bilinu 8-9% næstu þrjú árin.

„Ólíklegt er að draga fari úr atvinnuleysi fyrr en á síðari hluta ársins 2011,“ segir á vef ASÍ.

Skýrslu hagdeildar ASÍ, Horfur í efnahagsmálum 2009-2011 , má lesa í heild sinni hér. (pdf sjal)