Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur hefur höfðað meiðyrðamál gegn blaðamanni DV, Inga Frey Vilhjálmssyni, og ritstjórum sama blaðs, Jóni Trausta Reynissyni og Reyni Traustasyni. Fyrirtaka er í málinu á morgun samkvæmt dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur.

Málið byggir á því að Heiðar Már telur DV hafa flutt rangar og meiðandi fréttir um sig er tengdust viðskiptum með aflandskrónur. Þessar fréttir hafi skaðað hann persónulega og valdið tjóni í viðskiptum sem hann starfar við.