Hagkaup innkallar hér með, vegna galla, kertalínu sem fengist hefur í verslunum fyrirtækisins frá því í október 2008.

Þetta eru sex gerðir kerta í þremur litum; gyllt, silfruð og rauð. Yfirborð kertanna er eins og alsett litlum kúlum með glimmer-áferð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagkaupum.

Þar kemur fram að tilkynnt hefur verið um tvö tilvik þar sem gallans hefur orðið vart en sökum þeirrar hættu sem getur stafað af vörunni óskar Hagkaup eftir að viðskiptavinir skili henni umsvifalaust.

„Gallinn lýsir sér þannig að þegar kveikt er á gölluðu kerti brennur það í 1-2 klukkutíma án þess að nokkuð virðist vera að,“ segir í tilkynningunni.

„Kveikurinn brennur hins vegar ekki upp og stækkar því eftir því sem kertið brennur lengur. Þegar kertið hefur brunnið í 1-2 klukkustundir magnast eldurinn þannig að hætta getur stafað af.“

Hagkaup segir nauðsynlegt að taka þessi kerti umsvifalaust úr umferð og skila þeim strax til þjónustuborðs í næstu verslun Hagkaups gegn fullri endurgreiðslu eða farga þeim með öruggum hætti.

Nánari upplýsingar er að finna á www.hagkaup.is/innkollun , en þar má sjá upplýsingar um strikamerki, verð o.fl.

Einnig er hægt að hafa samband við skiptiborð Hagkaups í síma 563-5000.