Frá og með deginum í dag mun verslun Hagkaups í Skeifunni verða opin allan sólarhringinn.

Í tilkynningu frá Hagkaupum kemur fram að verslunin verður hér eftir nefnd Skeifan 24.

„Viðskiptavinir hafa óskað eftir auknu aðgengi að vöruúrvali Hagkaups og því var ákveðið að bjóða þetta nýmæli fram að jólum,“ segir í tilkynningunni.

„Ef vel  gengur verður þessari góðu nýbreytni áfram haldið á nýju ári.“