Már Guðmundsson seðlabankastjóri telur ólíklegt að landsframleiðsla muni ein og sér dragast saman vegna gjaldþrots Wow air einu og sér en það komi ofan í önnur áföll og ýmsa óvissu. Í ræðu sinni á aðalfundi Seðlabankans síðdegis í dag sagði Már að Seðlabankinn hefði í haust lagt mat á möguleg efnahagsáhrif falls Wow air.

„Ólíklegt er þó að það eitt og sér nægi til að það verði beinlínis samdráttur á árinu. Þetta áfall kemur hins vegar í framhaldi af öðrum áföllum, eins og loðnubresti. Síðan er til staðar áhætta sem ekki hefur enn raungerst eins og möguleg niðurstaða kjarasamninga sem samrýmist ekki verðstöðugleika og óskipulagt Brexit. Raungerist sú áhætta yrði hagvöxtur enn minni og ekki hægt að útiloka einhvern tímabundinn samdrátt," sagði Már.

Þar skipti þó máli að hagkerfið hafi meiri viðnámsþrótti og getu til að milda áföll en kannski nokkru sinni í sögu okkar. „Hér er um að ræða getu þjóðarbúsins og fjármálakerfisins til að takast á við áföll vegna ágætrar ytri stöðu, stórs gjaldeyrisforða og tiltölulega góðrar eiginfjárstöðu heimila og fyrirtækja. Staða bankanna er einnig sterk eins og ég hef nú farið yfir. Þá er svigrúm hagstjórnar til að bregðast við töluvert og mun meira en víða um heim. Það er afgangur á ríkissjóði og skuldir hins opinbera eru litlar í sögulegu samhengi. Svigrúm til lækkunar vaxta er hér mikið ef aðstæður kalla á, ólíkt mörgum viðskiptalöndum, þar sem þeir eru töluvert fyrir ofan núll hér á landi," segir Már í ræðu sinni.