Hagnaðaraukning hefur verið hjá kvenfataversluninni Oasis sem nemur 20% síðan í lok janúar.

Oasis er eitt af sex kvenfatamerkjum Mosaic Fashions en Baugur er kjölfestuhluthafi í fyrirtækinu.

Breska dagblaðið The Independent segir Oasis vera í hópi sigurvegara í smásölu á þessu ári.

Derek Lovelock, forstjóri Mosaic Fashions, sagði í símaviðtali við The Independent að þessari aukningu hafi verið náð með breytingum á birgðastýringu, betra vöruframboði og betri lagerstýringu. “Þessir þættir standa á bakvið brúttóhagnaðinn” sagði hann. Derek bætti við að brúttóhagnaður hefði aukist um 6% síðan í lok janúar.