Eimskip hefur birt uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung, en það var sent til kauphallar í gær eftir lokun markaða.

Rekstrartekjur Eimskipa á þriðja ársfjórðungi voru 129,7 milljónir evra, um 18,2 milljarðar og jukust um 8,5% milli ára. EBITDA félagsins nam 16,4 milljónum eva og jókst um 29,5% frá þriðja ársfjórðungi 2014. Hagnaður félagsins á fjórða ársfjórðungi nam 8,5 milljónum evra og jókst um 12,7%.

Hagnaður eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins nam 15,5 milljónum evra og jókst um 37,1% frá fyrra ári. Tekjur á fyrstu níu mánuðunum jukust um 10,9% og námu 369 milljónum evra.