Hagnaður af rekstri RÚV á reikningstímabilinu 1. september 2010 til 28. febrúar 2011 var 257 milljónir króna, samkvæmt nýbirtum árshlutareikningi. Samkvæmt efnahagsreikningi var verðmæti eigna í lok tímabilsins 5.920 milljónir króna., skuldir námu 4.942 milljónum króna og eigið fé 978 milljónir. Eiginfjárhlutfall félagsins var 16,5%.

Laun útvarpsstjóra 6,6 milljónir

Í ársreikningi RÚV kemur fram að heildarlaun á tímabilinu voru um 767 milljónir króna og lækkuðu um 90 milljónir frá fyrra ári. Heildarlaun og þóknanir til tíu helstu stjórnenda félagsins námu 46,5 milljónum króna, samanborið við 49,7 milljónir árið áður. Þar af voru heildarlaun og þóknanir útvarpsstjóra 6,6 milljónir króna á tímabilinu 1. september 2010 til lok febrúar 2011 en voru 8,7 milljónir árið áður.

Auknar tekjur af auglýsingum

„Afkoma félagsins er um 52 milljónum betri en áætlun rekstrarársins. Hún gerði ráð fyrir um 205 miljjóna hagnaði fyrri hluta rekstrarársins en um 200 milljóna króna tapi seinni helming þess, þannig að rekstur ársins í heild yrði í jafnvægi. Þessi mikli munur á fyrri og seinni hluta rekstrarársins skýrist af tvennu. Annars vegar er það eðli starfseminnar að afkoman sé betri fyrstu sex mánuði rekstrarársins þar sem stærstu tekjumánuðir í auglýsingum eru á því tímabili. Hins vegar er munurinn milli árshluta nú óvenjumikill vegna þess að þjónustutekjur lækkuðu um rúmlega 21 milljón króna á mánuði frá og með janúar 2011. Þær verða því 85 milljónum lægri á seinnihluta rekstrarársins sem ýkir venjubundna sveiflu milli árshlutanna,“ segir í tilkynningu RÚV.

Tekjur af auglýsingum voru um 820 milljónir króna og hækkuðu um 120 milljónir frá sama tímabili árið áður. Þjónustutekjur námu 1.573 milljónum króna, samanborið við 1.663 milljónir árið áður.

Árshlutareikningur RÚV .