Hagnaður bandaríska bankans Bank of America féll um 63% á fjórða ársfjórðungi og nam 732 milljónum dala samanborið við um tveggja milljarða dala hagnað á sama tíma í fyrra. Í frétt Reuters segir að ástæðan sé einkum sú að bankinn þurfti að afskrifa fasteignalán í vanskilum að fjárhæð fimm milljarða dala.
Bankinn fækkaði starfsmönnum í fasteignalánadeild sinni um 3.000 á fjórðungnum og er stefnan sú að skera útgjöld í deildinni niður um einn milljarð dala fyrir árslok. Þá fjölgaði nýjum fasteignalánum um 42% frá sama tímabili í fyrra.
Ekki eru allir sérfræðingar sannfærðir um að bankanum takist að auka tekjur sínar og lækkuðu hlutabréf í bankanum um 3,7% í gær.