Hagnaður Berkshire Hathaway, félags bandaríska fjárfestisins Warren Buffet, nam 14,1 milljarði dollara á öðrum ársfjórðungi þessa árs og jókst hagnaður félagsins um 17%. Fré þessu er greint á vef Financial Times .

Félagið segir ástæðuna fyrir auknum hagnaði vera hreyfingar á fjármálamörkuðum og sala fyrirtæksins á ýmsum verðbréfum.

Verð á hlutabréfum í A hluta félagsins hefur ekkert breyst síðan í byrjun ársins og stendur í 306.000 dollurum á hlut.