Hagnaður Berkshire Hathaway, hlutafélag Warren Buffetts, tvöfaldaðist á fyrsta ársfjórðungi í ár samanborið við sama tímabil í fyrra. Tryggingastarfsemi og afleiðuviðskipti skiluðu betri afkomu en áður.

Hagnaður nam 3,25 milljörðum dala en jarðskjálftinn í Japan í fyrra hafði þá mikil áhrif á afkomu Berkshire.