Hagnaður Coca-Cola European Partners dróst saman um 77 milljónir milli ára. Hagnaður félagsins var 102 milljónir í fyrra en 179 milljónir árið áður.

Sala félagsins dróst saman um hálfan milljarð og var 11,5 milljarðar í fyrra. Framleiðslukostnaður lækkaði hins vegar á sama tímabili og voru hreinar rekstrartekjur félagsins 2,8 milljarðar í fyrra borið saman við 2,6 milljarða árið áður.

Einar Snorri Magnússon er framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en hann tók við starfinu í byrjun maí á þessu ári.