Hagnaður flugfélagsins Cathay Pacific frá Hong Kong dróst saman um 61% en félagið er meðal þeirra flugfélaga sem högnuðust mest árið 2010.

Flugfélagið Cathay Pacific hagnaðist um 700 milljónir Bandaríkjadala í fyrra samanborið við 1,4 milljarða Bandaríkjadala hagnað árið 2010. Hár eldsneytiskostnaður réðu mestu um lakari afkomu félagins í fyrra en eldsneytiskostnaður jókst um 44% frá fyrra ári. Einnig hefur minni eftirspurn í útflutningi frá Kína komið niður á fraktflutningum félagsins sem og aukin óvissa í hagkerfum heimsins.

Cathay Pacific varaði við því að líkur væru á því að þættir í efnahagsumhverfinu árið 2012 yrðu enn meiri áskorun fyrir reksturinn en árið 2011.