Hagnaður Gasfélagsins ehf. nam 36,8 milljónum króna á síðasta ári og dróst saman um 59% samkvæmt ársreikningi félagsins. Tekjur félagsins námu 432 milljónum og jukust um 5% milli ára en rekstarhagnaður nam 53 milljónum og lækkaði um 53% milli ára.

Eignir námu 326 milljónum í árslok og var eiginfjárhlutfall 53%. Félagið er að fullu í eigu Sjávarsýnar ehf. sem er fjárfestingarfélag í eigu Bjarna Ármannssonar, forstjóra Iceland Seafood International.