Eik fasteignafélag hagnaðist um 2,4 milljarða fyrstu níu mánuði ársins, en þar af voru 804 milljónir fyrir þriðja ársfjórðung. Það er samdráttur um 16,5% frá þriðja ársfjórðungi í fyrra, þegar hagnaðurinn nam 963 milljónum króna. Fyrstu níu mánuðir ársins 2016 skiluðu hins vegar eilítið minni hagnaði eða 2.391 milljónum króna.

Rekstrartekjur fyrstu níu mánuðina námu  5.643 milljónum króna, en á þriðja ársfjórðungi námu þær 2.016 milljónum, sem er aukning um 194 milljónir króna frá þriðja ársfjórðungi í fyrra, eða 10,6%. Fyrstu níu mánuði ársins í fyrra námu rekstrartekjurnar 4.981 milljón, svo þær hafa aukist fyrir allt tímabilið um tæp 13,3%

Þar af voru leigutekjur 4.666 milljónir króna og tekjur vegna hótelrekstrar 662 milljónir króna. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 3.696 milljónum króna. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 3.022 milljónum króna og heildarhagnaður tímabilsins nam 2.410 milljónum króna.

Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 3.696 milljónum króna fyrstu níu mánuðina, en á sama tíma í fyrra nam hann 3.354, svo aukningin er um 10,2%, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu.

Rekstrarhagnaðurinn dróst saman um 8%

Ef horft er einungis til þriðja ársfjórðungs dróst rekstrarhagnaðurinn hins vegar saman úr 1.807 milljónum í 1.663 milli ára. Það er samdráttur upp á 144 milljónir eða tæplega 8%. Handbært fé frá rekstri nam 2.281 milljónum króna fyrstu níu mánuðina, en bókfært virði fjárfestingareigna nam 82.784 milljónum króna og bókfært virði eigin eigna nam 3.689 milljónum króna í lok tímabilsins.

Heildareignir félagsins jukust um tæpa 10 milljarða það sem af er árinu, fóru þær úr 79.562 milljónum í 89.192 milljónir. Skuldirnar jukust þó einnig, en ekki jafn mikið eða úr 53.193 milljónum í 61.341 milljón, en þar af námu vaxtaberandi skuldir 54.333 milljónum króna í lok tímabilsins.

Matsbreyting fjárfestingareigna nam 1.550 milljónum króna á tímabilinu, eiginfjárhlutfallið nam 31,2% og hagnaður á hlut var 0,70 krónur.

Forstjórinn segir reksturinn í takt við áætlanir

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar segir reksturinn hafa gengið vel á fyrstu níu mánuðum ársins og vera í takt við áætlanir. „Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir jókst um 10% milli ára og leigutekjur jukust einnig á milli ára eða um 11%,“ segir Harðar Hannes.

„Ánægjulegt var að sjá áhuga fjárfesta á skuldabréfaútboði sem félagið hélt nýverið. Eftirspurn nam 11,5 milljörðum króna en félagið seldi fyrir 9,9 milljarða króna.

Glæsilegar höfuðstöðvar Vodafone hafa nú opnað að Suðurlandsbraut 8. Ljóst er að byggingarnar tvær, Suðurlandsbraut 8 og 10, sem og bílastæðahúsið sem myndar einskonar rós munu gefa Suðurlandsbrautinni nútímalegt og flott útlit."

Arðgreiðslustefna og eignasafn

Félagið greiddi 928 milljónir króna í arð til hluthafa þann 27. apríl síðastliðinn enda er það stefna stjórnar að greiða 35% af handbæru fé frá rekstri hvers árs í arð til hluthafa. Handbært fé frá rekstri fyrstu þrjá mánuði ársins nam 2.281 milljónum króna.

Eik fasteignafélag sinnir rekstri og útleigu á atvinnuhúsnæði ásamt eignarhaldi á hótelrekstri. Fjöldi eigna félagsins er yfir 100 og telja þær samtals tæpa 300 þúsund útleigufermetra. Virði fasteigna félagsins er rúmir 86 milljarðar króna og heildarfjöldi leigutaka er yfir 400.

Helstu eignir félagsins eru Borgartún 21 og 26, Mýrargata 2-16, Pósthússtræti 2 (Hótel 1919), Nýi Glæsibær, Turninn í Kópavogi, Smáratorg 1, Glerártorg og Austurstræti 5,6,7 og 17. Stærstu leigutakar eru Húsasmiðjan, Fasteignir ríkissjóðs, Flugleiðahótel, Rúmfatalagerinn, Landsbankinn, Síminn, Míla, Deloitte, Vátryggingafélag Íslands og Fjarskipti (Vodafone).

Eik fasteignafélag fékk allar eignir Slippsins, fasteignafélags ehf. (nú EF14 ehf.), afhentar 1. mars 2017 eins og áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Félagið fjárfesti í þremur öðrum eignum á fyrri hluta ársins, Miðhrauni 2, Hyrjarhöfða 8 og hæð í Síðumúla 15. Félagið seldi eignarhluta sinn í Melgerði 13, sem var eina eign félagsins á Reyðarfirði, eignarhluta sinn í Hverafold 1-3 og hluta af eignarhlut sínum í Bæjarlind 14-16.

Stærsti hluti fasteignasafns Eikar eru skrifstofuhúsnæði eða 44%. Næst koma verslunarhúsnæði 26%, hótel 12%, lagerhúsnæði 11%, og veitingahúsnæði 4%. Um 90% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 36% á fjármála- og viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108), 22% í miðbæ Reykjavíkur og 19% í Smáranum - Mjódd. 10% eignasafnsins er á landsbyggðinni, þar af 9% á Akureyri.

Virðisútleiguhlutfall félagsins var 95,6% í lok ársfjórðungsins og hefur það lækkað um 0,8% frá áramótum.

Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur verður haldinn í dag, miðvikudaginn 8. nóvember 2017 klukkan 12:00 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2, Reykjavík. Boðið verður upp á léttan hádegismat frá kl. 11:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.