Afkoma Eimskipafélagsins fyrir fyrstu sex mánuði árins 2011 eftir skatta var jákvæð um  1,2 milljarða króna og rekstrarafkoma (EBITDA) var jákvæð um 3,8 milljarða króna. Heildareignir félagsins í lok júní voru 47,8 milljarðar króna og var eiginfjárhlutfall 58,7%. Vaxtaberandi skuldir voru 10,9 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip.

Rekstrarafkoma (EBITDA) á öðrum ársfjórðungi var jákvæð um 1,7 milljarð króna og afkoma eftir skatta var jákvæð um 300 milljónir króna.  Flutningamagn í flutningakerfum félagsins jókst um rúm 2% milli ára.

"Eimskipafélagið stendur á mjög traustum grunni og hefur rekstur utan Íslands gengið vel og er um helmingur af veltu félagsins að koma frá erlendri starfsemi.   Reksturinn á Íslandi hefur gengið ágætlega þrátt fyrir kostnaðarhækkanir og almennt takmarkaðar ný framkvæmdir og fjárfestingar á Íslandi.  Starfsemi Eimskip krefst mikilla fastafjármuna og er mikilvægt að afkoman geti staðið undir endurnýjun þeirra.  Félagið hefur að undanförnu fjárfest í nýjum gámum, flutningabifreiðum og öðrum tækjum. Sjóðsstaðan er áfram sterk og er félagið nú að vinna að frekari endurnýjun á öðrum eignum.  Það er mjög mikilvægt fyrir Eimskip að viðhalda grunnstoð félagsins sem er flutningakerfið til að tryggja áfram góða og örugga þjónustu við viðskiptavini félagsins," segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélagsins.