Hagnaður Facebook á fjórða ársfjórðungi nam 64 milljónum dala, en á sama tímabili í fyrra nam hagnaður fyrirtækisins 302 milljónum dala.

Rekstrarkostnaður fyrirtækisins jókst um 82% á tímabilinu og nægði 40% tekjuaukning ekki til að vinna upp þessa lækkun.

þegar fréttir bárust af uppgjörinu í gær lækkaði gengi bréfa Facebook skarpt og nam lækkunin 11% þegar mest lét. Þegar upp var staðið höfðu bréf fyrirtækisins þó ekki lækkað meira en 3,5%.