Festi hagnaðist um 52 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs samanborið við 76 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.

EBITDA að undanskildum kostnaði við kaup á Hlekk nam 1.367 milljónum króna á fjórðungnum samanborið við 436 milljónir á sama tímabili í fyrra.

„Minni umsvif voru í sölu annarra vara en eldsneytis í samstæðunni en gert hafði verði ráð fyrir á 1F 2019 en þó skar Krónan sig úr þar sem sala var umfram væntingar," segir í tilkynningunni.

Selt magn af bensíni og gasolíu minnkaði um 2,4% á milli fyrsta ársfjórðungs í ár og sama tímabils í fyrra, að mestu leyti á höfuðborgarsvæðinu. Eigið fé var 26 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 32,0% í lok fjórðungsins.

„Við erum afskaplega ánægð með þá góðu byrjun sem við höfum fengið á fyrsta ársfjórðungi þrátt fyrir þá verkfallsógn sem blasti við, loðnubrest sem hefur mikil áhrif víða og aðrar utanaðkomandi aðstæður sem hefðu getað sett strik í reikninginn.  Góður gangur er hjá Krónunni og var sala umfram væntingar á fjórðungnum sem verður að teljast mjög góður árangur. Hér innan Festi sjáum við ánægjulega þróun sem gefur góð fyrirheit um framtíðina. Rekstur þeirra fyrirtækja sem saman mynda þessa samstæðu gengur vel og samþætting þeirra er komin umfram áætlanir. Það eru því jákvæð merki víða og við finnum vel fyrir góðum byr í seglin,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi í tilkynningu.