General Motors tilkynnti í dag að hagnaður á 2. ársfjórðungi hefði aukist um 89% milli ára.

Hagnaður nam 2,5 milljörðum dala en 1,3 milljörðum dala í fyrra.

Bílaframleiðandinn gerir ráð fyrir mun betri afkomu seinnipart ársins en í fyrra, en þó ekki jafn góðri og fyrstu 6 mánuði þessa árs.