Góð samskipti, félag almannatengilsins Andrésar Jónssonar, hagnaðist um 18 milljónir króna á síðasta ári og þrefaldaðist hagnaðurinn frá fyrra ári er hann nam 6 milljónum króna. Velta félagsins jókst frá fyrra ári og nam 68 milljónum króna en árið áður nam veltan 45 milljónum.

Eignir jukust að sama skapi milli ára úr 16 milljónum í 34 milljónir. Eigið fé félagsins nam 3,5 milljónum króna í árslok 2019.

Fyrr á þessu ári færði félagið út kvíarnar og fór einnig að bjóða upp á ráðningarþjónustu.