Stærsta smásölufyrirtæki landsins, Hagar, hagnaðist um 850 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi. Þetta kemur fram í árshlutareikningi félagsins, sem er fyrir tímabilið 1. mars 2017 til 31. maí 2017. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn 948 milljónum og dróst hagnaðurinn því saman um 10,3% milli ára. Hagnaður tímabilsins nam 4,5% af veltu og var 0,74 kr. á hlut.

Vörusala tímabilsins nam 19.048 milljónum króna borið saman við 19.981 milljón króna árið áður. Framlegð tímabilsins nam 24,9% borið saman við 24,6% á fyrra ári. EBITDA nam 1.277 milljónum króna samanborið við 1.373 milljónir árið áður. EBITDA-hlutfall var 6,7% borið saman við 6,9% árið áður.

Heildareignir samstæðunnar námu 30.871 milljónum króna í lok tímabilsins. Fastafjármunir voru 19.027 milljónir króna og veltufjármunir 11.844 milljónir króna. Þar af eru birgðir 4.393 milljónir króna en birgðir voru 5.342 milljónir króna ári áður. Birgðir hafa því lækkað um 949 milljónir króna milli ára. Eigið fé félagsins var 18.262 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 59,2%.

Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 1.090 milljónum króna, samanborið við 1.350 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 346 milljónir króna og fjármögnunarhreyfingar 191 milljón króna. Handbært fé í lok tímabilsins var 3.027 milljónir króna, samanborið við 4.733 milljónir króna árið áður. Handbært fé hækkaði um 553 milljónir króna á tímabilinu.

Í fréttatilkynningu Haga kemur fram að magnaukning og verðhjöðnun hafi sett svip sinn á fyrsta fjórðung rekstrarársins. Þar segir:

Verðhjöðnun setti mark sitt á tekjur á fyrsta ársfjórðungi rekstrarársins eins og áður segir en gera má ráð fyrir áframhaldandi áhrifum hennar. Verðhjöðnun er einkum tilkomin vegna mikillar styrkingar krónunnar, betri innkaupa og lægra innkaupsverðs á samanburðartímabilinu. Stórir kostnaðarliðir hafa hins vegar hækkað, m.a. vegna kjarasamninga og þenslu á vinnumarkaði, auk þess sem flestir leigusamningar félagsins eru bundnir vísitölu neysluverðs, sem hefur hækkað á tímabilinu. Þessar aðstæður eru mikil áskorun fyrir félagið.

Áfram er unnið að hagræðingu og að bæta verslanir félagsins en líkt og áður hefur komið fram hefur verslun Hagkaups á 2. hæð í Kringlunni verið lokað. Unnið er að breytingu á versluninni á 1. hæð en vegna framkvæmdanna verður verslunin lokuð í 11 vikur á tímabilinu ágúst til október. Áætlað er að opna nýja og endurbætta verslun seinni hluta október. Þá mun verslun Bónus á Smáratorgi loka í um 3 vikur í ágúst en unnið er að stækkun og endurbótum á versluninni.

Eins og fram hefur komið undirritaði félagið samninga um kaup á öllu hlutafé í Lyfju hf. og Olíuverzlun Íslands hf. Kaupin voru undirrituð með fyrirvörum. Vegna kaupa á hlutafé í Lyfju hf. hefur fyrirvörum vegna áreiðanleikakönnunar verið aflétt en enn er fyrirvari í gildi vegna samþykkis Samkeppniseftirlitsins. Vænta má niðurstöðu eftirlitsins vegna Lyfju í júlí nk. Þá eru í gildi fyrirvarar vegna kaupa á Olíuverzlun Íslands hf. um niðurstöður áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Vænta má niðurstöðu undir lok árs 2017.

Samkeppnisumhverfi verslunar á Íslandi er að breytast. Félagið hefur undirbúið sig vel undanfarin ár, m.a. með hagræðingaraðgerðum og betri innkaupum. Breytt samkeppnisumhverfi hefur áhrif á veltu og markaðsstöðu félagsins. Of snemmt er að segja til um hve mikil áhrifin verða á afkomu næstu ársfjórðunga og til framtíðar. Félagið rekur yfir 50 verslanir og býður sama verð um land allt. Félagið hefur á að skipa öflugri vöruhúsastarfsemi, starfsfólki með mikla reynslu og mikilvæg viðskiptasambönd við íslenska og erlenda birgja og mun byggja á þeim góða grunni til framtíðar.