Hampiðjan skilaði hagnaði upp á 2,2 milljónir evra á fyrstu sex mánuðum ársins, sem jafngildir um 338 milljónum króna. Rekstrartekjur félagsins jukust um 20% á tímabilinu og voru 23,9 milljónir evra samanborið við 20 milljónir evra á sama tíma í fyrra.
„Sala og afkoma Hampiðju samstæðunnar var mun betri fyrrihluta ársins en hún var á sama tíma í fyrra, ef frá eru talin umskipti í hlutdeildarafkomu frá HB Granda. Söluaukningin er tilkomin vegna aukinnar sölu ofurkaðla til olíuiðnaðar og aukningar í sölu veiðarfæra á okkar helstu mörkuðum, þ.e. Íslandi, Írlandi og í Danmörku. Þó svo verkefnastaðan sé víðast hvar ágæt er seinni hluti ársins yfirleitt lakari hjá okkur en fyrri hlutinn og útlit fyrir að sú verði einnig raunin á þessu ári." segir Jón Guðmann Pétursson, forstjóri Hampiðjunnar, í tilkynningu frá félaginu.
Eiginfjárhlutfall félagsins var 59% nú í lok júni en félagið á töluvert meira af eignum en það skuldar. Heildareignir félagsins nema um 80,8 milljónum evra en vaxtaberandi skuldir eru um 24,5 milljónir evra. Þess má geta að félagið gerir upp í evrum. Fyrr á þessu ári greindi Viðskiptablaðið frá því að ákveðið var á aðalfundi félagsins að greiða hluthöfum um 124,1 milljón króna í arð vegna afkomunnar á árinu 2011. Helstu eigendur Hampiðjunnar eru félögin Vogun og Fiskveiðahlutafélagið Venus. Samkvæmt ársreikningi Hampiðjunnar árið 2010 áttu bæði félögin samtals 53% hlut. Félögin eiga þeir Árni Vilhjálmsson og Kristján Loftsson, löngum kenndur við Hval, og fjölskyldur þeirra. Þeir eru jafnframt stjórnarmenn í HB Granda.